Gapastokk á Austurvöll

Svo getum við látið bankaræningja og aðra landráðamenn skiptast á að hanga í stokknum og leyft almenningi að láta gamalt grænmeti og úldin fisk dynja á þeim. Legg til að einhver hrindi þessu í framkvæmd.
mbl.is Hæðst að Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bensínverð

Í fréttinni er þessi hækkun útskýrð með því að heimsmarkaðsverð hafi hækkað svo mikið í morgun. Var bensínið sem er á dælunum núna keypt í dag eða hvað? Svo keyrði ég fram hjá N1 í gærkvöldi og þá voru þeir þegar búnir að hækka upp í tæplega 192 krónur. Var það líka út af heimsmarkaðshækkunum í dag eða eigum við von á frekari hækkun á morgun? Í þriðja lagi þá tók ég bensín á Orkunni áðan og það kostaði 190 kall per líter en ekki 188 eins og sagt er í fréttinni.

Svo var ég í Stykkishólmi um helgina og þá kostaði bensínið þar 183 krónur á meðan það kostaði 186 í bænum á sama tíma. Getur einhver útskýrt það? Kostar svona mikið minna að flytja bensín út á land eða er enn finnst þeim bara gaman að rukka meira í borginni?


mbl.is Bensínlítrinn hækkar um 4 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggan hefur nóg að gera er það ekki?

Ætti löggan ekki frekar að nýta sína fámennu krafta í að reyna að upplýsa eitthvað af þeim innbrotum sem verið er að fremja daglega? Eða eru ekki neinir alvarlegri glæpir en þetta að gerast?


mbl.is Sást skvetta málningu á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógnandi framkoma

Við hverju býst maðurinn eiginlega? já fólk hefur rétt til að mótmæla en ef ekkert er hlustað á hávær mótmæli þá magnast þau upp. Ekki í neinu öðru siðmenntuðu ríki gæti stjórnin komist upp með svona hrikaleg afglöp og engin þurft að segja af sér. Hvar annars staðar væri Davíð Oddsson enn seðlabankastjóri þrátt fyrir að 90% þjóðarinnar vilji hann burt? Ef forsætisráðherra ætlar ekkert að hlusta á mótmælendur og allavega sýna þeim smá vott af virðingu og svara spurningum þeirra, eða koma með einhverjar haldbærar ástæður fyrir hvers vegna almenningur ætti að treysta stjórninni þá kemur auðvitað að því að fólk fer að vera með "ógnandi framkomu". Ef hann gæti svarað röddum mótmælenda með öðrum orðum en "skríll" þá væri fólk kannski aðeins rólegra. Hvað þarf eiginlega til að þessar raddir berist í gegnum þykku hljóðhimnu hans og skili sér inn í heila? Einhver hélt því fram að það verði ekki fyrr en  hann þurfi að óttast um líf sitt, og ég er farinn að óttast að það sé rétt...
mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa þeir ekki haft nægan tíma?

Hafa þeir ekki haft mánaðar jólafrí til að undirbúa sig til að ræða um efnahagsmálin? Þurfa þeir virkilega að taka frí strax á öðrum degi til að hugsa um þetta? Maður hefði haldið að nú þegar nokkrir mánuðir eru liðnir frá hruninu að ríkisstjórnin ætti að hafa stöðuna og sín plön nokkurn vegin á hreinu um ætti að geta rætt um málið nokkurn vegin fyrirvaralaust.... en þeir virðast ekki hafa verið að spá mikið í þessu.
mbl.is Þingfundur fellur niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er þá satt

Þessar  upplýsingar hljóta þá að vera réttar fyrst bankinn bankanum er svona í mun að láta refsa blaðamönnum fyrir að birta þær. Væri ekki nær að Fjármálaeftirlitið eyddi sínum tíma og orku í að rannsaka glæp bankans frekar en hvort það var líka glæpur að upplýsa um hann. Annars hefði þetta aldrei komist upp og verið þaggað niður í skjóli bankaleyndar. Svo er annað mál að það mætti líka rannsaka hvers vegna bankarnir gátu komist upp með að stunda svona vafasöf viðskipti án vitundar Fjármálaeftirlitsins, eða var það búið að leggja blessun sína yfir þetta allt saman?
mbl.is FME hefur umfjöllun Morgunblaðsins til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamannafundur?

Aldrei hafa þeir séð ástæðu til að halda blaðamannafund þegar þeir hækka launin sín, jafnvel þótt það sé á sama tíma og aðrar mikilvægar stéttir sjá sig knúnar til að fara í verkfall til að knýja fram minnstu kjarabót. Ég ætla að vona að eitthvað meira hafi verið á dagskrá fundarins og hann hafi ekki bara verið lélegt bragð til að kaupa sér velvild landsmanna nú þegar mótmælin verða sífellt stærri.

Það passar að þetta útspil komi á föstudegi fyrir mótmæli, rétt eins og gálgafrestur heimila var kynntur síðasta föstudag rétt til að kaupa einhverja velvild fyrir helgina. Ég bíð svo eftir hvers konar ókvæðisfréttir koma á sunnudag þegar mótmælin eru afstaðin þessa vikuna.

Þótt vissulega sé það jákvætt að laun ráðamanna færist aðeins nær því sem almenningur þekkir þá efast ég um að lækkunin sé svo mikil að nokkur ráðherra þurfi að velta því fyrir sér hvernig hann ætlar að standa í skilum á sínum lánum á næstunni.

Þótt laun ráðherra lækki um einhverja þúsundkalla þá breytir það engu fyrir þá sem geta ekki borgað af húsnæði sínu um næstu mánaðarmót.
Það breytir engu fyrir þá sem eru búnir að missa vinnuna og hætta að fá laun yfir höfuð. 
Það breytir engu fyrir öryrkja hvers bætur dugðu varla til að lifa af áður en allt þetta skall á.
Það breytir engu fyrir námsmenn erlendis eins og mig sem vegna gengis þurfa nú að velja á milli þess að borga leigu eða mat.

Einu úrræðin sem við höfum er að fá gálgafrest á húsnæðislán og fresta þannig einhverjum afborgunum til seinni tíma með tilheyrandi vöxtum og kostnaði, eða að taka enn hærri námslán og koma úr námi með fleiri fleiri milljónir í lán sem við verðum líklega að borga af alla ævi.

Og þótt þetta þýði vissulega lægri útgjöld fyrir ríkissjóð, sem er jákvætt, þá breytir það því ekki að það er þetta fólk sem kom okkur í þessa stöðu og ætti að þurfa að blæða fyrir það alveg jafn mikið ef ekki meira en almenningur sem á enga sök á máli.


mbl.is Óska eftir launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útúrsnúningar!

Ekki geta þeir drullast til að svara spurningunni án þess að snúa út úr. Þeir segja að skuldir hafi flust yfir til nýja Kaupþings sem þurfi að sjá um að innheimta þær og ekki sé gerður greinamunur á hvort það séu skuldir starfsmanna eða annarra. En málið er nú það... að ef einhverjar áhveðnar skuldir voru afskrifaðar áður  en FME tók yfir Kaupþing þá gátu þær að sjálfsögðu ekkert verið fluttar yfir til Nýja kaupþings þar sem þær voru ekki til lengur, og verða þá þar af leiðandi aldrei innheimtar. Af hverju pressa fréttamenn ekki á þessa djöfla að svara því sem um var spurt en ekki bulla einhverja vitleysu um allt annað.


mbl.is Voru skuldir stjórnenda Kaupþings afskrifaðar?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkalög og gapastokkur

Er ekki kominn tími á að við setjum okkar eigin hryðjuverkalög til að taka á þessu pakki? Gapastokk á Austurvöll?


mbl.is Árás á fullveldi þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann gæti til dæmis byrjað á...

að borga skólagjöldin mín núna um áramótin, því ekki hef ég efni á því ef gengið helst svona. Reyndar er alls óvíst hvort ég hafi yfir höfuð efni á að borga leiguna mína úti eða mat fram að þeim tíma því allt hefur það nærri tvöfaldast út af gengi krónunnar. Hann mætti kannski leggja einn til tvo hundraðþúsundkalla í púkkið þar. Flestir námsmenn erlendis eru í svipaðri stöðu. Nú svo eru einhver 2-300 þúsund íslendingar sem eru ekkert betur settir. Nú veit ég ekki alveg hvað hann hafði í huga þegar hann sagðist vilja leggja sitt af mörkum og leggja sitt fé í það, en ljóst er að það þar töluvert til að bæta okkur þann skaða sem við höfum orðið fyrir út af öllu þessu brölti.
mbl.is Hannes vill leggja sitt að mörkum við uppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Mímir

Höfundur

Davíð Arnar
Davíð Arnar
Aðallega röfl og nöldur um hitt og þetta...
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 1715

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband